|
Ályktun
Samþykkt á formannafundi í Reykjanesbæ 17. og 18.
október 2003Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands
Íslands haldinn 17. og 18. október 2003 krefst þess að
stjórnvöld sjái til þess að Landhelgisgæsla Íslands fái
nægilegt fé á fjárlögum til að geta uppfyllt þær skyldur
sem á henni hvíla. Nauðsynlegt er að Landhelgisgæslan sé
ávallt vel búin hvað skipakost og tækjabúnað varðar til
að takast á við björgun og eftirlit með lögsögunni.
Jafnframt þarf hún að vera í stakk búin til að takast á
við nýjar og breyttar aðstæður sem upp gætu komið vegna
vaxandi umferðar misvel útbúinna skipa sem sigla um
íslenskt hafsvæði. Fundurinn undirstrikar nauðsyn þess
að efla enn frekar flota gæslunnar svo hún geti betur
sinnt hlutverki sínu, sjófarendum til öryggis og hamlað
gegn sívaxandi ásælni annarra þjóða inn í lögsögu
Íslendinga. Við Íslendingar eigum stóra landhelgi á einu
erfiðasta hafsvæði heimsins, sú landhelgi verður ekki
varin með aðeins tveimur skipum.
Til
baka
|