|
Ályktun um
kjara- og atvinnumál
Samþykkt á 25. þingi SSÍ sem
haldið var 23. og 24. nóvember 2006.
Á þingum Sjómannasambands Íslands hefur marg oft
verið bent á nauðsyn þess að hefja hvalveiðar í
atvinnuskyni m.a. til að viðhalda eðlilegu jafnvægi í
lífríki hafsins. Því fagnar 25. þing Sjómannasambands
Íslands þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa á
ný hvalveiðar í atvinnuskyni. Þingið ítrekar fyrri
skoðun um að hvalveiðar í atvinnuskyni og starfsemi
tengd hvalaskoðunarferðum með ferðamenn geti vel farið
saman.
25. þing Sjómannasambands Íslands fagnar því að
Landssamband smábátaeigenda skuli loks vera komið með
umboð til að gera kjarasamning fyrir útgerðir smábáta.
Er það von þingsins að í kjölfar þessa verði hægt að
gera kjarasamning á landsvísu fyrir sjómenn sem stunda
sjómennsku á smábátum.
25. þing Sjómannasambands Íslands minnir á að í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að
taka eigi á því vandamáli sem leiðir af leiguframsali á
aflamarki. Þingið skorar því á sjávarútvegsráðherra að
beita sér nú þegar fyrir lögum um takmörkun á
leiguframsali aflamarks. 25. þing Sjómannasambands
Íslands krefst þess að lög verði sett um fjárhagslegan
aðskilnað veiða og vinnslu. Eins og staðan er í dag
getur kaupandi og seljandi afla verið einn og sami
aðilinn sem í krafti einokunaraðstöðu sinnar ákveður
verðið. Slíkur viðskiptamáti hlýtur að brjóta í bága við
lög um heilbrigða samkeppni og góða viðskiptahætti.
Eðlilegt hlýtur að teljast að allir fiskkaupendur hafi
sömu möguleika á að kaupa þann fisk sem leyfilegt er að
veiða úr takmarkaðri auðlind. Fyrsta skrefið til að koma
á eðlilegum viðskiptaháttum með fisk er að aðskilja
veiðar og vinnslu fjárhagslega sem leiðir til þess að
allur afli verði seldur á fiskmarkaði.
25. þing Sjómannasambands Íslands telur tímabært að
afnema það hámark sem sett er á afla þorsks og ýsu í
heildarafla báta sem stunda dragnótaveiðar í Faxaflóa.
Þingið telur að þar sem veiðar úr þessum tegundum eru
bundnar í aflamarki ætti að vera óþarfi að hafa slíkar
reglur um hámarkshlutfall þessara tegunda í heildarafla.
Þingið skorar því á sjávarútvegsráðherra að afnema þetta
skilyrði 2. mgr. 5. greinar reglugerðar nr. 788/2006 um
dragnótaveiðar.
25. þing Sjómannasambands Íslands harmar þá ákvörðun
stjórnvalda að leggja veiðigjald á íslenskan sjávarútveg
og skerða þannig samkeppnishæfi hans. Ljóst er að auknar
álögur á sjávarútveginn bitna á endanum á launakjörum
sjómanna. Þingið skorar því á stjórnvöld að endurskoða
ákvörðun sína og afnema nú þegar veiðigjaldið.
25. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess að
stjórnvöld setji meira fjármagn til
Hafrannsóknastofnunar, þannig að hún geti sinnt
hlutverki sínu og haldið skipaflota stofnunarinnar á sjó
með eðlilegum hætti.
25. þing Sjómannasambands Íslands skorar á
sjávarútvegsráðherra að uppræta það ójafnræði sem er
innan sjávarútvegsins. Er hér meðal annars átt við
línuívilnum, útflutningsálag og fleira.
25. þing Sjómannasambands Íslands fagnar því að
íslenskum kaupskipaútgerðum vegnar vel á Íslandi og
erlendis. Samkvæmt fréttum frá skipafélögunum sigla nú á
þeirra vegum 65 kaupskip, öll skráð undir erlendum
fánum. Það er kaldhæðni örlaganna að eyþjóð sem byggir
alla sína aðdrætti og útflutning á öflugum
kaupskipaflota skuli ekki vera með eitt einasta kaupskip
skráð á Íslandi. Í mörg ár hafa samtök sjómanna hvatt
til þess að hér á landi verði lögfest sambærilegt
skattaumhverfi og er á hinum norðurlöndunum. Sú aðgerð
hefur leitt til þess að skráningu skipa hefur fjölgað
þar verulega. Þingið hvetur ríkisstjórn Íslands til að
hrinda í framkvæmd nú þegar sambærilegu lagaumhverfi og
aðrar þjóðir hafa gert til eflingar sínum
kaupskipaflota.
25. þing Sjómannasambands íslands fagnar stofnun
hollvinasamtaka varðskipsins Óðins. Skipið á sér merka
sögu þorskastríðsáranna og hefur í tæp 50 ár veitt góða
og örugga þjónustu við íbúa landsins og sæfarendur.
Þingið hvetur ríkisstjórn til að leggja af öll áform um
sölu skipsins en vinna því máli framgang að skipið verði
gert að safni þorskastríðsáranna og þeirrar þjónustu og
aðstoð sem það veitti fólki til lands og sjávar.
Til
baka
|