|
Ályktun
um skipulagsmál.
21. þing Sjómannasambands Íslands haldið 21. -
23. október 1998 telur nauðsynlegt að félögum, sem
hafa samningsumboð til að semja um kaup og kjör
sjómanna, fækki, þannig að félagseiningarnar verði
færri og stærri. Þingið telur að markmiðið sé
að í framtíðinni verði samið um kaup og kjör
sjómanna á einu borði, og því markmiði megi ná
með stofnun eins landsfélags sjómanna.
21. þing Sjómannasambands Íslands áréttar að
með sameiningu sjómannafélaga er ekki stefnt að
því að brjóta niður félagseiningar á hverjum
stað. Þvert á móti er hugsunin sú að áfram verði
unnt að starfrækja slíkar einingar eftir atvikum sem
deildir í stærri félögunum.
Til
baka
|