VALMYND
Forsíða
Skrifstofa
Kaupskrá
Kjarasamningar
Slysa- og veikindaréttur
Sjómannalög
Aðildarfélög
Fréttir
Ályktanir og samþykktir
Skiptaverð
 

 

 

Ályktun um öryggir- og tryggingamál.

Samþykkt á 25. þingi SSÍ sem haldið var 23. og 24. nóvember 2006.

 25. þing SSI þakkar þeim fjölmörgu aðilum sem að öryggis og björgunarmálum starfa fyrir óeigingjarnt og gott starf.

Það vekur hinsvegar athygli og beinist að sjómannastéttinni, verkstjórn og öryggismálum um borð í íslenskum skipum að á árinu 2005 voru 366 slys á sjómönnum tilkynnt Tryggingastofnun ríkisins. Enn er óviðunandi slysatíðni meðal sjómanna þegar til þess er litið að 21% allra tilkynntra slysa til TR eru slys á sjómönnum þrátt fyrir að sjómenn séu aðeins 2,6% þeirra sem á vinnumarkaði starfa. Sé litið til ársins 1995 voru tilkynnt slys á sjómönnum til TR 459 sem var þá 17% allra tilkynninga um slys sem stofnuninni bárust, en sjómenn voru þá 4,5% þeirra sem á vinnumarkaði voru. Sem sjá má af slysatölum hefur slysatíðnin meðal sjómanna aukist og telur þing SSI að hér þurfi að bregðast skjótt við og sporna gegn þessari óheillaþróun.

Nauðsynlegt er að samræma aðgerðir í öryggismálum sjómanna og gera heildaráætlun í samræmi við markmið um fækkun sjóslysa.

Í lögum um rannsókn sjóslysa frá árinu 2000 nr. 68 20. maí 5.gr. 2.mgr. segir: Um skráningu sjóslysa sem verða um borð í íslenskum skipum af hvaða stærð sem er, svo og skráningu slysa og atvika sem verða á erlendum skipum sem nefndin tekur til skoðunar, skal sett sérstök reglugerð.

Reglugerð var gefin út af Samgönguráðuneytinu 24. janúar 2001 um rannsókn sjóslysa en þar segir í 9.gr. Tilkynningar um sjóslys. Skipstjóra, eða þeim er kemur í hans stað, er skylt að tilkynna rannsóknarnefnd sjóslysa um slys á mönnum sem verða á skipi.

Tilkynningar skulu sendar rannsóknarnefnd sjóslysa án undandráttar og eigi síðar en innan 7 daga frá því sjóslys varð á eyðublaði sem rannsóknarnefnd sjóslysa lætur í té. Tilkynning á rafrænu formi skal metin jafngild.

Rannsóknarnefnd sjóslysa skal hafa samráð við slysaskrá Íslands og Tryggingastofnun ríkisins um móttöku og úrvinnslu tilkynninga sjóslysa þegar slys hafa orðið á mönnum.

Hér hefur alvarleg brotalöm orðið á, en nákvæm slysaskráning er stór hluti forvarnastarfs í öryggismálum sjómanna. Þing SSI hvetur samgönguráðherra til að fylgja þessum ákvæðum reglugerðarinnar eftir af fullum þunga.

Í reglugerð um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum frá 14. desember 1998 með breytingum frá 5. mars 2004 eru engar kröfur gerðar til manna um þekkingu og stjórnun krana eða togvinda hvað þá að ætlast sé til kunnáttu þeirra er gefa stjórnendum fyrrnefndra tækja bendingar um tilteknar aðgerðir. En þetta atriði er meginorsök slysa sem verða á sjó. Krana eða lyftara á bryggju má enginn stjórna nema hafa lokið tilteknu námskeiði á vegum Vinnueftirlits ríkisins og að geta gefið og skilið bendingar, t.d. við hífingu. Séu fyrrnefnd tæki flutt um borð í skip er engrar þekkingar krafist. Þá eru engin ákvæði um eftirlit með slitálagi víra, burðarþol lása og keðja, blökkum, tromlum og hvers konar öðrum búnaði sem notaður er til hífinga.

Þing SSI krefst þess að úr þessu verði tafarlaust bætt. Á áhættusvæðum um borð í skipum, ofan og neða þilja, á að merkja á þiljur varúðar viðvaranir vegna slysahættu. Þingið hvetur samgönguráðherra til þess að bera saman kröfur Vinnueftirlits ríkisins til þeirra manna sem vinna á krönum, lyfturum og stjórna hífingum og hvernig kröfur annarra þátta í öryggismálum við hverskonar störf í landi eru í samanburði við störf sjómanna um borð í kaupskipum, olíuskipum og fiskiskipum. Er það ekki umhugsunarvert hvort sami aðili eða stofnun sjái um öryggismál til sjós og lands?

25. þing SSÍ væntir þess að stéttarfélög skipstjórnarmanna hvetji félagsmenn sína til þess að vera ekki einir í stjórnpalli þá skip er á ferð og jafnframt að stjórna hífingum veiðafæra.

Um nokkurn tíma hafa aðeins 35% þeirra er skráðir hafa verið á námskeið Slysavarnarskóla sjómanna mætt til náms. Það er óviðunandi ástand. Í ljósi margra mánaða biðlista sjómanna,sífelldra óska um undanþágu og fyrirhyggjuleysi sjómanna og útgerðarmanna í þessum mikilvæga hlekk slysavarna sjómanna leggur 25. þing SSÍ til að 50% námskeiðsgjalds verði óafturkræft staðfestingargjald við skráningu á þáttöku.

Þá hvetur þing SSI áhafnir skipa til að tilnefna öryggisfulltrúa um borð. Jafnframt eru stéttarfélög sjómanna hvött til að fylgja þessu öryggismáli eftir. Þing SSI væntir þess að samgönguráðherra breyti lögum um lögskráningu sjómanna í þá veru að allir þeir sem hafa atvinnu af sjósókn skuli lögskráðir án tillits til stærðar skips.

Rannsóknarnefnd sjóslysa skal halda sérstaka skrá yfir hvar slys verða og fjöldi þeirra verði skráður á viðkomandi skip. Verði tvö slys eða fleiri um borð í skipi á sama árinu er rannsóknarnefnd sjóslysa skylt að grípa til sérstakra ráðstafana um borð í viðkomandi skipi og fara yfir öryggismál skipsins með áhöfn og fulltrúa útgerðar. Allir þeir sem afla sér menntunar í skipstjórnar- eða vélfræðum skulu fá markvissa kennslu í verkstjórn og vinnuhagræðingu og í skýrslugerð vegna tilkynningar um slys.

Alvarlegir misbrestir í opinberu starfi hafa átt sér stað hjá nokkrum lögskráningastjórum. Lögskráningarstjórar og skipstjórnarmenn eiga að sinna skyldum sínum hvað lögskráningu varðar. Núverandi ástand er óviðunandi. Þar sem sjómenn hafa verið lögskráðir í skipsrúm a) án tilskylinna réttinda frá Slysavarnaskóla sjómanna. b) erlendir ríkisborgarar án kennitölu Landhelgisgæslan er hvött til þess að fylgja enn fastar eftir skyndiskoðunum á skipum, búnaði og lögskráningu.

Mikil aukning verður á siglingum stórra gas og olíuflutningaskipa innan lögsögu Íslands á næstu árum. 25. þing SSI hvetur stjórnvöld til að grípa nú þegar til aðgerða og lögbinda afmarkaðar siglingaleiðir innan íslensku efnahagslögsögunnar fyrir þessi skip og önnur skip sem sigla með hættulega og mengandi farma.

25. þing SSÍ fagnar því að útboð hefur farið fram á Evrópska efnahagssvæðinu vegna útsendingar hljóð- og sjónvarpsdagskrár RÚV um gervitungl. Er þess að vænta að á allra næstu mánuðum verði útsendingar hljóðvarps og sjónvarps aðgengilegar um allt land, sjómönnum á hafi úti og Íslendingum erlendis.

Til baka

TENGLAR
Alþýðusamband Íslands
Fiskistofa
Hafró.is
Verðlagsstofa skiptaverðs
Sjómennt