VALMYND
Forsíða
Skrifstofa
Kaupskrá
Kjarasamningar
Slysa- og veikindaréttur
Sjómannalög
Aðildarfélög
Fréttir
Ályktanir og samþykktir
Skiptaverð
 

 

 

Ályktun um öryggis- og tryggingamál

samþykkt á 22. þingi SSÍ 18. - 20. október 2000.

22. þing Sjómannasambands Íslands þakkar Slysavarnarskóla sjómanna gott starf á undanförnum árum og telur að fækkun slysa á sjó megi að miklu leyti rekja til starfsemi skólans. Þingið telur að skylda eigi sjómenn til að sækja skólann með reglulegu millibili, t.d. á 5 ára fresti, til að viðhalda þeirri þjálfun í öryggismálum sem skólinn veitir.

22. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess að Landssamband ísl. útvegsmanna semji við sjómenn á fiskiskipum um að vátryggingabætur vegna slysa verði ákvarðaðar á grundvelli reglna skaðabótalaga nr. 50/1993 með sama hætti og samið var um milli Sjómannafélags Reykjavíkur og kaupskipaútgerðanna þann 6. maí síðastliðinn fyrir sjómenn á farskipum.

22. þing Sjómannasambands Íslands fagnar því að samgönguráðherra hafi sett af stað vinnu við gerð langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda. Jafnframt væntir þingið þess að áframhaldandi náið samstarf verði haft við hagsmunasamtök sjómanna um gerð áætlunarinnar til að starfið skili hámarks árangri.

22. þing Sjómannasambands Íslands fullyrðir að fækka megi verulega sjóslysum með því að endurskoða verkstjórn og verklag og veita tilsögn um hættur til sjós. Þingið telur nauðsynlegt að tekin verði upp markviss kennsla í sjómannaskólum og meðal starfandi yfirmanna um mannleg samskipti, góða verkstjórn og skipulögð vinnubrögð.

22. þing Sjómannasambands Íslands ítrekar fyrri áskoranir til Siglingastofnunar Íslands, að allt eftirlit með skipum og bátum verði virkara en það er í dag. Í þessu sambandi má nefna að skyndiskoðanir eru mjög nauðsynlegar. Björgunaræfingar um borð í skipum eru forsenda þess að rétt viðbrögð séu tryggð ef óhapp eða slys ber að höndum. Vitað er að í alltof mörgum tilvikum er ekki farið að lögum í þessu efni. Nauðsynlegt er að farið sé að lögum og reglum um reglubundnar æfingar. Einnig að umsagnir háseta verði metnar til jafns við það sem yfirmenn skrá í bækur skipa um björgunaræfingar.

22. þing Sjómannasambands Íslands bendir á að herða þarf eftirlit með því að farið sé að lögum varðandi lögskráningu skipverja og beitt verði viðurlögum við brotum.

22. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess að heilbrigðisráðherra láti skilgreina hvaða sjúkdómar meðal sjómanna flokkist undir atvinnusjúkdóma. Í framhaldi af því láti ráðherra endurskoða úrelt lög um atvinnusjúkdóma.

22. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess að könnun verði gerð á því hvernig hægt er að bæta vinnuaðstöðu um borð í skipum til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys. Jafnframt verði settar skýrar reglur um vinnuaðstöðu um borð í skipum og hver eigi að hafa eftirlit með að þeim reglum sé fylgt.

22. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess af löggjafanum að lög um skráningu slysa til sjós verði hert þannig að skipstjórnarmenn verði skyldaðir til að færa þau inn í skipsdagbók og þeir sektaðir ef út af er brugðið. Í því sambandi ætti að útbúa sérstaka slysadagbók.

Til baka

TENGLAR
Alþýðusamband Íslands
Fiskistofa
Hafró.is
Verðlagsstofa skiptaverðs