VALMYND
Forsíða
Skrifstofa
Kaupskrá
Kjarasamningar
Slysa- og veikindaréttur
Sjómannalög
Aðildarfélög
Fréttir
Ályktanir og samþykktir
Skiptaverð
 

 

 

Ályktun

um skýrslu nefndar á vegum sjávarútvegsráðherra er hafði það hlutverk að endurskoða lögin um stjórn fiskveiðanna.

Nýlega skilaði nefnd sú áliti, sem sjávarútvegsráðherra skipaði til að endurskoða lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða. Eins og fram kemur í inngangi álits meirihluta nefndarinnar var henni m.a. falið að leggja til breytingar á lögum nr. 38/1990 er hefðu það markmið að ná sem víðtækastri sátt landsmanna um fiskveiðistjórnunarkerfið. 

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands haldinn á Egilsstöðum 23. - 24. nóvember 2001 telur að meirihluti nefndarinnar hafi með tillögum sínum að engu haft það markmið sem sett var heldur þvert á móti munu tillögur meirihlutans, nái þær fram að ganga, auka enn á það ósætti sem ríkt hefur um fiskveiðistjórnunarkerfið. 

Fundurinn hafnar alfarið hugmyndum meirihluta nefndarinnar um að lagt verði veiðileyfagjald eða auðlindaskattur á sjávarútveginn. Ekki verður séð með hvaða hætti auðlindaskattur á sjávarútveginn stuðlar að sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið. Aukin skattheimta á útgerðina mun ekki hafa annað í för með sér en meiri skuldir og hvata til að enn fleiri selji sínar aflahlutdeildir til betur stæðra útgerða. Augljóst er, að fenginni reynslu, að slíkt muni ekki leiða neitt annað af sér en fjölgun leiguliða eða jafnvel verktöku sem því miður er þegar farið að bóla á. 

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands haldinn á Egilsstöðum 23. - 24. nóvember 2001 hafnar alfarið tillögu meirihluta nefndarinnar um að heimilt verði að framselja aflahlutdeild frá fiskiskipi til fiskvinnslustöðvar. 

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands haldinn á Egilsstöðum 23. - 24. nóvember 2001 hafnar alfarið tillögu meirihluta nefndarinnar um að reglur um hámarksaflahlutdeild fyrirtækja verði rýmkuð. 

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands haldinn á Egilsstöðum 23. - 24. nóvember 2001 hafnar alfarið tillögu meirihluta nefndarinnar um að ákvæði um veiðiskyldu verði færð til fyrra horfs, þ.e.a.s. að veiða verði aðeins 25% úthlutaðs aflamarks á tveimur árum í stað 50% eins og kveðið er á um í núgildandi lögum. Hins vegar er það krafa fundarins að stjórnvöld fari að opna augun fyrir því, að eitt af aðal atriðunum í því að sátt komist á í sjávarútveginum, er að banna framsal aflamarks. Fundurinn leggur til að einungis verði leyfð jöfn skipti á aflamarki. Veiðiskylda verði 100% nema þegar um óviðráðanlegar aðstæður er að ræða. 

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands haldinn á Egilsstöðum 23. - 24. nóvember 2001 hafnar alfarið þeirri hugmynd meirihluta nefndarinnar að þær veiðiheimildir sem úthlutað er í úthafinu verði framseljanlegar milli skipa sem skráð eru í mismunandi löndum. Fundurinn bendir á að með slíkri heimild er einungis verið að finna leið til þess að útgerðarmenn geti losað sig við íslenska sjómenn og ráðið til sín vinnuafl frá þeim löndum þar sem laun eru hvað lægst og mannréttindi jafnvel fótum troðin. Fundurinn lítur svo á að ef ofangreindar tillögur meirihluta nefndarinnar ná fram að ganga sem lög frá Alþingi sé verið að stofna til meiriháttar átaka við sjómenn.

Til baka

TENGLAR
Alþýðusamband Íslands
Fiskistofa
Hafró.is
Verðlagsstofa skiptaverðs
Sjómennt