| Slysa- og veikindaréttur
Oftast reynir á þá grein sjómannalaganna
frá 1985 sem snýr að réttindum
sjómanna þegar slys eða veikindi ber
að höndum. Hér að neðan er greinin
birt í heild sinni en sjómenn skulu alltaf
gæta þess að það er skýlaus
réttur þeirra við slíkar aðstæður
að þeir haldi sínum launum í
allt að tvo mánuði við slíkar
aðstæður. Eftirfarandi er 36. gr. laganna
í heild sinni.
36. gr. laga nr. 35/1985: Um veikinda-
og slysarétt
Ef skipverji verður óvinnufær
vegna sjúkdóms eða meiðsla sem
hann verður fyrir meðan á ráðningartíma
stendur skal hann eigi missa neins í af launum
sínum í hverju sem þau eru greidd
svo lengi sem hann er óvinnufær af framangreindum
ástæðum, þó ekki lengur
en tvo mánuði. Sé skipverji í
launalausu fríi er hann veikist eða slasast
tekur hann laun frá þeim tíma er
hann skyldi hefja störf að nýju. Skipverji,
sem forfallast vegna veikinda, á þó
ekki rétt til launa í fleiri daga en hann
hefur verið í þjónustu útgerðarmanns.
Hafi skipverji verið ráðinn á
sama skip eða hjá sama útgerðarmanni
í tvö ár samfellt skal hann, auk
þess sem í 1. mgr. segir, halda föstu
kaupi, kauptryggingu eða sérlega umsömdu
veikindakaupi í allt að einn mánuð
en í allt að tvo mánuði eftir
fjögurra ára samfellda ráðningu
hjá sama útgerðarmanni.
Skipverji, sem forfallast frá vinnu vegna slysa
við vinnu, á leið til eða frá
vinnu eða vegna atvinnusjúkdóma sem
stafa af vinnunni skal fá greitt fast kaup, kauptryggingu
eða sérlega umsamið veikindakaup í
allt að þrjá mánuði til
viðbótar greiðslum samkvæmt 1.
mgr. og 2. mgr.
Skipverji á ekki rétt á kaupi þann
tíma, sem hann hliðrar sér ólöglega
hjá að inna störf sín af hendi,
né fyrir þann tíma sem hann er óstarfhæfur
vegna sjúkdóms eða meiðsla sem
hann hefur leynt vísvitandi við ráðningu
sína. Sama gildir ef skipverji er ekki starfhæfur
vegna sjúkdóms eða meiðsla sem
hann hefur sjálfur bakað sér af ásetningi
eða stórfelldu gáleysi.
Nú vill skipverji neyta réttar síns
samkvæmt 1., 2. og 3. mgr. og skal hann þá,
ef atvinnurekandi óskar þess, afhenda honum
vottorð læknis um veikindin eða slysið
er sýni að hann hafi verið óvinnufær
vegna veikindanna eða slyssins."
|