Kjarasamningur við LS og SSÚ atkvæðagreiðsla

"Góðan dag
Nýr kjarasamningur við Landsamband smábátasjómanna og Samtök smærri útgerða, var undirritaður 13. nóvember sl.
Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst á morgun, 19. nóvember kl. 12:00.  Atkvæðagreiðslan stendur til kl. 16:00 þann 30. nóvember.

Félög innan vébanda Sjómannasambands Íslands sjá um atkvæðagreiðsluna hvert fyrir sig.

Þeir sjómenn (launamenn) á smábátum að 15 metrum, sem greiða stéttarfélagsgjöld til félaga innan Sjómannasambands Íslands geta greitt atkvæði um samninginn.   

Fyrirkomulag kosninga getur verið mismunandi á milli félaga en flest félög eru með rafræna atkvæðagreiðslu og fá félagsmenn tilkynningu frá sínu félagi með hlekk á kosninguna.  Nota þarf rafræn skilríki til að greiða atkvæði. 

Einhver félög eru mögulega með leynilega kosningu á skrifstofum félaganna.  Vinsamlega kannið hjá ykkar félagi hvernig fyrirkomulagið er hjá því og hvort þið eruð á kjörskrá. 

Sjómenn sem eiga sinn bát eða eru eigendur og stjórnendur hlutafélags sem á bátinn eiga ekki að vera á kjörskrá og hafa ekki atkvæðisrétt í þessum kosningum.

Að atkvæðagreiðslunni lokinni þann 30. nóvember, verða atkvæði greidd um samninginn, innan félaga Sjómannasambandsins, talin sameiginlega.