Niðurstaða úr kosningu um kjarasamninginn milli SSÍ og SFS

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem undirritaður var þann 6. febrúar síðastliðinn lauk kl. 15:00 í dag.

Á kjörskrá voru 1104 og greiddu 592 atkvæði um samninginn eða 53,62%

 

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi:

Af þeim sem kusu sögðu 367 já eða 61,99%, 217 sögðu nei  eða 36,66% og auðir og ógildir seðlar voru 8 eða 1,35%.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 62,84% já og 37,16% sögðu nei.

 

Samningurinn var því samþykktur.