Sjómannadagurinn 2026

Sjómannadagurinn 2026

 

Góðar óskir til allra sjómanna, fjölskyldna þeirra og landamanna allra.

Það má segja að Sjómannadagurinn sé upphaf bæjarhátíða á Íslandi hvert sumar.

Í mörgum bæjarfélögum út um land er Sjómannadagsins minnst með einum eða öðrum hætti. Í seinni tíð má segja að starf sjómannsins sé ekki eins áberandi eins og á árum áður. Enda hefur íslenskum sjómönnum fækkað til muna á undanförnum áratugum. Skipunum hefur fækkað á sama tíma og þau hafa stækkað til muna. Fyrir vikið eru skipin öruggari vinnustaðir en áður. Það er ekki sjálfkrafa þróun, heldur með sameiginlegu átaki sem alltaf er í gangi, hjá sjómönnum, útgerðum og með þrotlausri vinnu og árvekni Slysavarnaskóla sjómanna. Þeirra framlag verður seint þakkað í þessum efnum. Á síðasta ári var Fiskifélagi Íslands slitið og eignum þess skipt upp til eigenda þess. Í hlut Sjómannasambands Íslands, VM- félags vélstjórnar og málmtæknimanna og Félags skipstjórnarmanna, komu 25 milljónir króna sem þessi samtök afhentu Slysavarnarskólanum á 34. þingi Sjómannasambandsins síðastliðið haust. Með þessu framlagi getur skólinn endurnýjað MOB bátinn sinn og fjárfest í nauðsynlegum búnaði til að gera starfið enn öflugra. Sjómenn geta sannarlega verið stoltir af þessu framlagi á hátíðisdegi sínum.

Loðnuvertíðin kom vel út hjá flestum þó auðvitað hefðu sjómenn viljað hærra verð til skipta eins og alltaf. Verð í Færeyjum voru mun hærri en hér og þar vantar skýringar. Þó skal tekið fram að síðustu upplýsingar um afurðaverð í Færeyjum gefa til kynna að verksmiðjurnar þar virðast hafa keypt loðnuna of háu verði. Þær upplýsingar sem ég hef núna undir höndum  eru að afurðaverð á þeim afurðum sem búið er að selja þar, sé nú um12 DK sem er þá um 240 ISK. Miðað við skiptareglur hér á landi væri verð uppúr sjó um 80 ISK miðað við þessi afurðaverð.

Það skal tekið fram að ekki er vitað um magn eða afurðaflokka sem undir eru í þessum afurðaverðum í Færeyjum.

Þegar þessi orð eru rituð eru fundir með útgerðum, sjómönnum og stéttarfélögum þeirra á dagskránni um uppgjör eftir loðnuvertíðina. Vonandi ganga menn sáttir frá borði eftir snarpa og góða vertíð.

Í næstu viku kynnir Hafró ráðgjöf sína um afla fyrir næsta fiskveiðiár. Fróðlegt verður að sjá þær. Eins og margir sjómann hafa greint frá undanfarið er mikið af fiski á ferðinni á Íslandsmiðum og hægt að veiða mun meira er Hafró gerir tillögur um.  Eitt sem fer ekki mikið fyrir í umræðunni um aflaráðgjöf Hafró er aflareglan svokallaða. Hafa margir kallað eftir hækkun á aflareglunni til fyrra horfs. Hvort það er einhver lausn verður að ræða og leiða til lykta.

Aflabrögðin á Íslandsmiðum hafa verið okkur hagstæð og verð á sjávarafurðum sjaldan verið hærra. Verð á 4 kg. slægðum þorski uppúr sjó í viðskiptum milli skyldra aðila er nú 522 ISK. Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna ásamt Verðlagsstofu skiptaverðs hefur að undanförnu gert breytingar til batnaðar á fiskverðsmódelinu sem notað er til ákvörðunar fiskverðs í beinum viðskiptum. Mikil greiningarvinna sérfræðinga allra sem hlut eiga að máli hefur gert ákvörðun um fiskverð öruggari en áður var og gagnsæið er orðið mun meira.  Sú vinna mun halda áfram í öðrum tegundum en þorskinum á næstunni. Hér er hlekkur á vefsvæði Verðlagsstofunnar, Verðlagsstofa  þar liggja miklar upplýsingar um fiskverð sem ég hvet sjómenn að kynna sér vel.

Að þessum orðum sögðum ítreka ég orð mín um farsæld til ykkar sjómenn góðir og óska ykkur, fjölskyldum ykkar sem og landsmönnum öllum gleðilegrar hátiðar á Sjómannadaginn.

F.h. Sjómannasambands Íslands

Valmundur Valmundsson formaður