Kjaraviðræðurnar við SFS sigldu í strand
Eftir árangurslausar viðræður við SFS um endurnýjun kjarasamninga sjómanna frá því að samningarnir losnuðu þann 1. desember 2019 til febrúar 2021 var ákveðið að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara í von um að eitthvað færi að ganga í viðræðunum. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara með bréfi dags. 17. febrúar 2021.
Helstu kröfur sjómanna voru hækkun kauptryggingar og kaupliða hjá sjómmönnum til jafns við hækkanir skv. lífskjarasamningnum sem samið var um á almenna vinnumarkaðnum, fiskverðsmál, aukið mótframlag í lífeyrissjóð og fleira er snýr að réttindamálum og lagfæringum á samningnum til að gera hann einfaldari og auðskildari fyrir þá sem eiga að vinna eftir honum.
Nú hafa verið haldnir yfir 20 fundir hjá ríkissáttasemjara og á fundi þann 6. september síðastliðinn slitnaði upp úr viðræðunum þar sem of mikið ber í milli aðila. Helst strandar á að útgerðarmenn eru ekki tilbúnir til að auka mótframlagið í lífeyrissjóði sjómanna um 3,5% stig nema fá þann kostnað að fullu bættan og rúmlega það með auknum álögum á sjómenn með meiri þátttöku þeirra í ýmsum kostnaði útgerðarinnar. Sem dæmi hefur SFS ítrekað reynt að fá sjómenn til að samþykkja lækkun á hlutaskiptunum, samþykkja þátttöku í veiðigjöldum útgerðarinnar, samþykkja aukna þátttöku í kostnaði vegna slysatryggingar sjómanna og að samþykkja nýtt ákvæði um afslátt af skiptahlut vegna nýrra skipa. Þetta hafa þeir viljað fá gegn því að auka framlag útgerðarinnar í lífeyrissjóð sjómanna.
Helstu atriði síðasta tilboðs útgerðarinnar til sjómanna var að hækka kauptryggingu og kaupliði um aðeins tæpan helming af því sem samið var um á almenna vinnumarkaðnum, aukið framlag í lífeyrissjóð kæmi til sjómanna í 7 þrepum, 0,5% stig á ári frá undirritun samnings og að samningstíminn yrði 12 ár. Gegn þessu fóru þeir fram á að þátttaka sjómanna í kostnaði við slysatrygginguna hækkað á samningstímanum þannig að sjómenn greiddu þriðjung iðgjaldsins og að útgerðin fengi 10% afslátt á aflahlutum í fjögur ár fyrir ný skip. Auk þess yrði frystiálag á nýjum frystitogurum lækkað varanlega úr 7% í 5%.
Þessum tillögum SFS höfnuðu fulltrúar sjómanna að sjálfsögðu.
Aðilar hafa verið sammála um að afnema olíuverðstenginguna og skipta úr heildar verðmætinu. Sjómenn buðu að skiptaprósentur yrðu reiknaðar niður m.v. 70% samhliða afnámi olíuverðsviðmiðunarinnar á móti auknu framlagi útgerðarinnar í lífeyrissjóðinn. Útgerðin hefur ekki fallist á það og vill meira eins og hér hefur komið fram. Jafnframt hafa sjómenn boðið 6 ára samning, en vilja að sjálfsögðu leiðrétta kauptrygginguna og hækka hana til jafns við almennar launahækkanir í landinu og tryggja að á samningstímanum hækki kauptryggingin í takt við launahækkanir á almenna vinnumarkaðnum.
Þokast hefur í samkomulagsátt varðandi að breyta stærðarviðmiðun báta í kjarasamningnum úr brúttórúmlestum í skráningarlengd, en eins og menn vita er hætt að mæla ný skip og skip sem hafa farið í breytingar í brúttórúmlestum og veldur þetta vandamálum varðandi hvaða skiptaprósentur eiga að gilda fyrir þessa báta í hinum ýmsu veiðigreinum. Samkvæmt kjarasamningi á útgerðin að kaupa þessa mælingu, en gerir ekki enda kostar slík mæling mikið. Jafnframt hefur þokast í samkomulagsátt varðandi styrkingu á Verðlagsstofu skiptaverðs og lagfæringar varðandi verðlagningu á uppsjávarfiski.
Viðræður um endurnýjun kjarasamnings sjómanna hafa nú siglt í strand vegna kröfu útgerðarinnar um að sjómenn taki á sig meiri kostnað en ávinningur þeirra yrði með undirritun samnings á forsendum útgerðarinnar. Í yfirlýsingu frá útgerðinni segir að ef fallist yrði á kröfur sjómanna hlypi kostnaður útgerðarinnar á milljörðum árlega. Þetta er rangt. Á móti stærsta kostnaðarliðnum, auknu mótframlagi útgerðarinnar í lífeyrissjóð, hafa sjómenn boðið ýmislegt sem kemur útgerðinni til góða. Má þar nefna afnám olíuverðsviðmiðunar og 6 ára samningstíma. Auk þess er rétt að fram komi að í kjarasamningum á almenna markaðnum um jöfnun lífeyrisréttinda var gert samkomulag við stjórnvöld um lækkun tryggingagjalds á atvinnureksturinn til að létta fyrirtækjunum að mæta hækkuðu mótframlagi í lífeyrissjóð sem samið var um á árinu 2016. Útgerðin fékk lækkunina eins og annar atvinnurekstur á Íslandi en hefur ekkert lagt á móti til lífeyrismála sjómanna. Að lokum má nefna að með breytingu á stærðarviðmiði skipa sparar útgerðin sér kostnað við að láta mæla skipin í brúttórúmlestum. Allt það hagræði sem útgerðin fengi með því að ganga að tilboði sjómanna virða þeir einskis enda markmið þeirra að lækka laun sjómanna í yfirstandandi kjaraviðræðum.
Segja má að afstaða SFS sé verulega dapurleg og mikil vonbrigði í ljósi þeirra leiða sem samtök sjómanna hafa lagt fram til lausnar kjaradeilunni.
Lokun vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Sjómannasambands Íslands lokuð frá og með 26. júlí til og með 6. ágúst næstkomandi.
Skrifstofan opnar aftur mánudaginn 9. ágúst.
Deilan við SFS um skiptaverðið tapast fyrir Félagsdómi
Þann 6. maí 2020 sendi SFS bréf til samtaka sjómanna þar sem tilkynnt var um uppsögn á ákvæði kjarasamningsins sem undirritaður var þann 18. febrúar 2017. Um er að ræða ákvæðið í grein 1.29.1. um 0,5% hækkun á skiptaverðmætishlutfallinu þegar afli er seldur til skyldra aðila.
Sjómannasamband Íslands taldi að SFS gæti ekki sagt þessu ákvæði upp einhliða þar sem hingað til hefði ekki verið ágreiningur milli aðila um að síðast gildandi samningur gilti þar til nýr væri gerður. Samningurinn hafði gildistíma til 1. desember 2019 en þar sem nýr kjarasamningur hefur ekki verið gerður milli aðila taldi SSÍ að kjarasamningurinn sem undirritaður var þann 18. febrúar 2017 væri enn í gildi enda unnið eftir honum. Sjómannasamband Íslands vísaði því málinu til Félagsdóms til að leysa úr þessum ágreiningi milli SFS og SSÍ um að 0,5% hækkun á skiptaverðmætishlutfallinu þegar afli er seldur skyldum aðila gildi þar til nýr samningur kæmist á milli aðila.
Í gær var kveðinn upp dómur í Félagsdómi þar sem SFS er sýknað af af kröfu SSÍ. Frá og með 1. júní 2020 er því skiptaverðið það sama hvort sem aflinn er seldur skyldum eða óskyldum aðila. Dómurinn fellst á að síðastgildandi samningur haldi gildi sínu að því undanskildu að frá 1. júní 2020 fellur 0,5% hærra skiptaverðmætishlutfallið brott úr grein 1.29.1. Rökin virðast þau að ekki hafi verið haldinn fundur eftir 1. desember 2019 í starfshópnum sem vinna átti í bókunum samningsins á samningstímanum. Miðað við málflutning SFS fyrir Félagsdómi er ljóst að þau samtök voru aldrei á samningstímanum að vinna að heilindum í að ljúka vinnu við bókanirnar. Niðurstaða þessa máls setur því kjaraviðræðurnar við SFS í enn meiri hnút en þær viðræður voru í fyrir og því ljóst að viðræður við SFS munu ekki halda áfram nema undir handleiðslu ríkissáttasemjara.
Skiptaverð lækkar í janúar 2021
Vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á gasolíu lækkar skiptaverð til sjómanna í janúar 2021 frá því sem það var í desember 2020.
Skiptaverð í viðskiptum milli skyldra aðila fer úr 72,5% í 70,5% af verðmæti aflans.
Skiptaverð í viðskiptum milli óskyldra aðila fer úr 72,0% í 70,0% af verðmæti aflans.
Þegar afli er frystur um borð verður skiptaverðið 72,0% af FOB verðmæti aflans og 66,5% af CIF verðmæti aflans.
Þegar rækja er unnin um borð verður skiptaverðið 69,0% af FOB verðmæti aflans og 63,5% af CIF verðmæti aflans.
Skiptaverð þegar siglt er með aflann til sölu erlendis er óháð olíuverði og er því óbreytt. Þegar siglt er með uppsjávarfisk er skiptaverðið 70% af söluverðmæti aflans erlendis.
Þegar siglt er með botnfisk til sölu erlendis er skiptaverðið 66,0% af söluverðmæti aflans.
Jólakveðja frá Sjómannasambandi Íslands
Sjómannasamband Íslands óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Skiptaverð í desember 2020 óbreytt frá nóvember 2020
Skiptaverð vegna heimsmarkaðsverðs á gasolíu er óbreytt í desember frá því sem það var í nóvember. Sjá nánar undir "skiptaverð" á heimasíðunni
Útgerðin neitar að afhenda skipsdagbók
Útgerðin Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur neitað að afhenda skipsdagsbók Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 fyrir sjópróf sem mun fara fram vegna hópsmits um borð í togaranum. Skylda útgerðarinnar til að afhenda skipsdagbókina er skýr samkvæmt siglingalögum. Útgerðin ber fyrir sig persónuverndarsjónarmiðum. Stéttarfélög skipverja telja þessa afstöðu útgerðarinnar fordæmalausa, óeðlilega og á skjön við lögmælta skyldu. Skylda til að afhenda skipsdagbók í sjóprófi er skýr enda um að ræða helsta samtímagagn um atburði um borð í skipinu. Tregða útgerðarinnar hefur þegar leitt til tafa á að sjópróf geti farið fram, en dómari hafði upphaflega boðað að þau færu fram 6. nóvember.
Af þessu tilefni ítreka stéttarfélögin nauðsyn þess að málið sé rannsakað í kjölinn og allar staðreyndir komi upp á yfirborðið. Tregða útgerðarinnar að þessu leyti er til þess fallin að vekja upp grunsemdir um að skipsdagbókin geymi upplýsingar sem ekki þoli dagsljósið. Stéttarfélögin munu því þurfa að krefjast úrskurðar héraðsdóms um skyldu útgerðar til þess að afhenda skipsdagbókina. Ekki hefur þurft að kljást um þessi grundvallaratriði áður svo vitað sé.
Félag skipstjórnarmanna
Sjómannafélag Íslands
Sjómannasamband Íslands
Verkalýðsfélag Vestfirðinga
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna
Skiptaverð óbreytt í nóvember
Skiptaverð í nóvember vegna heimsmarkaðsverðs á olíu er óbreytt frá því sem það var í október. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá þróun heimsmarkaðsverðs olíunnar mánuð fyrir mánuð frá árinu 2015 og áhrif olíuverðsins á skiptaverðið. Græna línan sýnir olíuverði í $/tonn, en línurnar fyrir neðan sýna skiptaverðið. Ef olíuverðið er hærra en efsta bláa línan er skiptaverðið 70% ef aflinn er seldur óskyldum aðila innanlands. Ef olíuverðið fer niður fyrir neðstu línuna á myndinni er skiptaverðið 80% af heildarverðmæti aflans þega hann er seldur óskyldum aðila. Sjá nánar skiptaverðið undir flipanum "skiptaverð" á heimasíðunni.

32. þingi Sjómannasambands Íslands frestað um óákveðinn tíma.
Í ljósi óvissu vegna Covid-19 faraldursins var ákveðið á fundi sambandsstjórnar Sjómannasambands Íslands þann 29. október 2020 að fresta fyrirhuguðu þingi, sem halda átti dagana 26. og 27. nóvember næstkomandi. Samkvæmt ákvörðun sambandsstjórnar er þinginu frestað um óákveðinn tíma.
Boðað verður til þingsins með að lágmarki eins mánaðar fyrirvara þegar um hægist í þjóðfélaginu vegna þessa faraldurs og stjórnin telur óhætt að halda þingið.
Uppfærðar leiðbeiningar um smitgát um borð í fiskiskipum
Leiðbeiningar varðandi smitgát um borð í fiskiskipum hafa verið uppfærðar og sendar til allra útgerða innan SFS og til aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands og víðar.
Hér er hægt að nálgast uppfærðar leiðbeiningar.